21.6.2007 | 22:21
Kvennaíþróttir
Ekki fyrir svo löngu bauð Hallaeinhver sig fram til formanns KSÍ. Mörgum femmunumþótti sjálfsagt Halla yrði formaður fyrir það eitt að hún var kona sem hafði áhuga á fótbolta. Í kjölfarið var mikið tuð um á bloggsíðum landsins um stöðu kvennaboltans. Hvað stelpur í íþróttum ættu bágt, hversu lítil umfjöllun væri um þær osfv. Ég benti þáá að ég hefði aldrei tekið eftir þessari svokallaðri mismunun. Kannski er það í einhverjum félögum en aldrei hef ég fundið fyrir þessu. Strákarnir í Val fá hvorki meira né minna en við stelpurnar í Val. Þrátt fyrir það eru bara karlar í stjórn handknattleiksdeildar. Ekki einn einasti femínisti hefur ákveðið að berjast fyrir jafnrétti í stæðasta félagi landsins, hvorki í handboltanum né fótboltanum. Sennilega brjálað að gera í blogginu og mála steina bleika.
Umfjöllun og áhugi á kvennafótbolta hefur löngum verið ansi lítill. Ég hef afskaplega gaman að fótbolta en hef aldrei farið á kvennalandsleik. Af hverju ekki? Jú kvennafótbolti hefur hingað til verið eins og horfa á málningu þorna. Nú þekki ég margar stelpur í landsliðinu, veit að þetta eru toppíþróttamenn stelpur í góðu formi, stelpur sem leggja mikið á sig. Vandamálið er bara það að þær eru einmitt stelpur og þess vegna hlaupa þær hægar, stökkva lægra og skjóta lausar heldur en karlarnir. Það er bara skrifað í genin og er engum að kenna nema hugsanlega guði (ji minn er hann ekki karl?). Þrátt fyrir að fáir hafa mætt á leiki hjá stelpunum og það sé undantekning að kvennaleikir séu sýndir í sjónvarpinu hafa fótboltastelpurnar ekki tekið upp taktík femmana og vælt yfir fámenninu. Þær vita að til þess að laða að áhorfendur þarf að standa sig vel og spila skemmtilegan bolta...... sóknarbolta.
Og hvað gerist? Þær bæta sig, spila skemmtilegan bolta og nú á fimmtudagskvöldi er sett met á kvennalandsleik í fótbolta. Ég sit í sófanum og naga mig í handbökin fyrir að hafa ekki mætt. Þetta er orðin hin fínasta skemmtun. Stelpurnar spila skemmtilegan bolta og fólkið mætir. Þóra fyrrum liðsfélagi minn og ferðafélagi t.d. hefur afsannað það t.d. að kvennamarkmenn séu hlægilegir. Íþróttir eru nefnilega ekki annað en afþreying og afþreying verður að vera skemmtileg til þess að fólk mæti. Stelpurnar svörðu kalli, skemmta landanum og hann mætir.
Það sama á við um okkur stelpurnar í handboltanum. Ef fólk mætir ekki á leikina okkar getum við bara litið í eigin barm, við þurfum bara að skemmta áhorfendum betur með skemmtilegum sóknarbolta. Vælið dugar skammt.
Til hamingju samt stelpur... mér sýnist að málið sé dautt í hálfleik!
|
Fimm marka sigur Íslands á Serbum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |



snorris
sigurdurkari
bjarney
juliusvalsson
gummibraga
don
1962
tommi
id
sveiflan
gastone
olafurfa
nerdumdigitalis
dalkvist
gdh
agny
jakobk
pro-sex
forsetinn
heidathord
grettir
sigridurkaren
arh
bjorgvinr
eirikuro
hrannarb
moppi
villithor
Athugasemdir
"Fár er svo vitur að allt sjái sem er"
Edda Agnarsdóttir, 21.6.2007 kl. 22:32
Stelpurnar er klárlega Íslensku þjóðinni til sóma,þær eru að standa sig á meðan karlalandsliðið er ekkert að gera að viti í fótbolta.Er ekki komin tími á að KSÍ fari að gera meira fyrir kvennaliðið í fótbolta.Sendum karlaliðið á heilsuhæli til að reyna að ná sér á strik!!!!
Erla (IP-tala skráð) 21.6.2007 kl. 23:19
Váá. Skynsöm kona!!! Þvílík upplífun.
Jón Árni Bragason, 21.6.2007 kl. 23:25
Mér þætti gaman að vita hvort þær sem sem hæst létu í tengslum við formannskjörið í KSÍ hafi mætt á leikinn í kvöld og eða aðra landsleiki kvennaliðsins.
Björg K. Sigurðardóttir, 21.6.2007 kl. 23:30
Heft horft á eitthvað af kvennaleikjum í gegnum tíðina, sennilega þó frekar vegna leikmannanna en leiksins. Stóð mig síðan að því að skemmta mér vel yfir leiknum á laugardaginn og datt ekki í hug að sleppa leiknum í kvöld. Þetta var ágætur leikur og ekki við íslenska liðið að sakast þó serbneska liðið hafi virkað lélegt. Hef eiginlega meiri áhuga á því að vita hvenær næsti leikur hjá þeim er en karlalandsliðinu, reyndar fer það að verða dáldið eins og að horfa á bloopers, maður fær svona kjánahroll að hugsa til karlaliðsins eftir síðustu leiki. Held að það þurfi engin nektarplaköt til að fá fólk á leiki ef þær spila svona áfram.
Pétur Björn Jónsson, 21.6.2007 kl. 23:31
Frábær grein hjá þér Hafrún, ég er innilega sammála þér.
Gunnar Th. Gunnarsson, 22.6.2007 kl. 01:32
Sammála síðasta ræðumanni!
Sigurjón, 22.6.2007 kl. 18:16
Sæl Hafrún:
Ef peningur hefði verið til þá hefði ég mætt á þennann leik,en horfði á hann á R'UV og skemmti mér konunglega.
Varðandi íþróttir kvenna almennt þá eiga þær alveg jafnmikinn rétt á sér eins og íþróttir karla og vonandi verður íslenska kvenalandsliðið í handbolta komið í fremstu röð eftir einhvern tíma og þá brosa allir.
En þessi pistill eru svo sannarlega orð í tíma töluð,fleiri svona pistla.
Magnús Paul Korntop, 23.6.2007 kl. 04:13
Sælar
Ein kona í stjórn !!!!!! Bobobobb
Heheheheh
Sigga Jóna (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 13:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.